Sögur - Bókaormaspjall með Sunnevu Kristínu og Sóleyju Sif

Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV

Categorie:

Bókaormaráð KrakkaRÚV er skipað 12 krökkum sem hafa lesið 14 bækur eftir mismunandi höfunda sem komu út fyrir síðustu jól. Þau undirbúa viðtöl um þær ásamt umsjónarmönnum KrakkaRÚV og úr verða skemmtileg og áhugaverð samtöl milli lesenda og höfunda. Í þessum þætti verða tekin saman helstu umræðuefni tveggja viðtala. Sunneva Kristín Guðjónsdóttir spjallar við Þórarin Eldjárn um bókina Ljóðpundari og Sóley Sif Jónsdóttir við Rán Flygenring um bókina Ótrúleg ævintýri Brjálínu Hansen. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson