Sögur- Bókaormaspjall með Sölva Þór og Lúkasi Myrkva (2/2)

Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV

Categorie:

Bókaormaráð KrakkaRÚV er skipað 12 krökkum sem hafa lesið 14 bækur eftir mismunandi höfunda sem komu út fyrir síðustu jól. Þau undirbúa viðtöl um þær ásamt umsjónarmönnum KrakkaRÚV og úr verða skemmtileg og áhugaverð samtöl milli lesenda og höfunda. Í þessum þætti verða tekin saman helstu umræðuefni tveggja viðtala. Sölvi Þór Jörundsson spjallar við Arndísi Þórarinsdóttur um bókina Nærbuxnaverksmiðjan og Lúkas Myrkvi Gunnarsson við Birgittu Elínu Hassell um bókina Hrollur - besti vinur minn er ósýnilegur. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir og Jóhannes Ólafsson