Smásögur - Hörpuslag

Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV

Categorie:

Í þættinum í kvöld ætlum við að hlusta á smásögu í tilefni af því að dagur barnabókarinnar var fyrr í þessum mánuði. Dagur barnabókarinnar er haldinn 2. apríl en það er einmitt afmælisdagur danska ævintýrahöfundarins H.C. Andersen. Sagan sem við hlustum á í dag heitir Hörpuslag og er eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og var sagan flutt á degi barnabókarinnar árið 2011. Höfundur les. Umsjón: Jóhannes Ólafsson