Smásögur - Eins og í sögu

Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV

Categorie:

Í þættinum í kvöld ætlum við að hlusta á smásögu í tilefni af því að dagur barnabókarinnar var í síðustu viku. Dagur barnabókarinnar er haldinn 2. apríl, á afmælisdegi danska rithöfundarins H.C. Andersen. Sagan sem við hlustum á í dag heitir Eins og í sögu og er eftir Ragnheiði Gestsdóttur og var sagan á degi barnabókarinnar árið 2013. Lesari: Ragnheiður Gestsdóttir Umsjón: Jóhannes Ólafsson