Menningarheimurinn - Stundaglasið (5/6)
Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV
Categorie:
Er hægt að ferðast fram og til baka í tíma? Hvernig eru tímavélar gerðar? Hvernig semur maður sögur um tímaflakk? Sex þátta sería um tímaferðalög og ævintýrin sem þeim fylgja. Í hverjum þætti heyrum við einn hluta af útvarpsleikritaseríunni Stundaglasið, en hún er bæði skrifuð og leikin af nemendum á leiklistarbraut í Borgarholtsskóla. Við spjöllum líka við Ævar Þór um tímaflakksævintýri, heyrum í nokkrum krökkum sem velta fyrir sér hvað þau myndu gera ef þau gætu farið hvert sem er í tíma og hlustum á góða tímaflakkstónlist. Tímaflakkssérfræðingur þáttanna: Ævar Þór Benediktsson, rithöfundur og leikari. Tímaflakkshugleiðingar frá nemendum í fjórða bekk í Ísaksskóla í Reykjavík. Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir. Fimmti þáttur af sex.