Menningarheimurinn -Kórar (2/2)

Útvarp Krakkarúv - A podcast by RÚV

Categorie:

Að syngja í kór er ótrúlega vinsælt á Íslandi og það finnast hundruðir kóra út um allt land. Í þessum þáttum ætlum við að kynnast kórum, hvernig þau syngja í röddum, hvernig tónlist þau syngja og svo framvegis. Við gerumst flugur á vegg á kóræfingum, heyrum hvernig söngvararnir hita upp röddina, læra ný lög og hvað þeim finnst skemmtilegast við að syngja í kór. Kórarnir sem við heimsækjum í þættinum í dag eru Gradualekórar Langholtskirkju og Stúlknakórar Reykjavíkur. Stúlknakór Reykjavíkur Stjórnendur: Guðrún Árný Guðmundsdóttir, Matthildur Guðrún Hafliðadóttir, Margrét Pálmadóttir og Sigríður Soffía Hafliðadóttir Graduale Liberi, Graduale Futuri og Gradualekórinn Stjórnendur: Rósa Jóhannesdóttir, Sunna Karen Einarsdóttir og Þorvaldur Örn Davíðsson Viðmælendur: Dagný Sól Steinsdóttir Ingibjörg Xiang Ragnarsdóttir Jakobína Lóa Sverrisdóttir Margrét Helga Arnardóttir Allir krakkarnir í Graduale Liberi Umsjón: Ingibjörg Fríða Helgadóttir Síðari þáttur af tveimur