Tryggvaskáli. Tvö söfn á Húsavík. Ævintýraarkítekt

Sögur af landi - A podcast by RÚV

Categorie:

Í þættinum í dag fjöllum við um Tryggvaskála á Selfossi, sem er elsta húsið í bænum og á sér merka sögu. Bryndís Brynjólfsdóttir rifjar upp sitthvað úr sögu hússins. Því næst bregðum við okkur í heimsókn til Húsavíkur þar sem við heimsækjum Safnahúsið og Hvalasafnið. Að lokum fáum við að kynnast svokölluðum ævintýraarkítekt sem starfar við að skipuleggja flest allt sem viðkemur ferðaþjónustu. Það er Marinó Sveinsson sem segir frá störfum sínum við fjölskyldufyrirtækið Sportferðir. Viðmælendur í þættinum eru Bryndís Brynjólfsdóttir, Sólrún Harpa Sveinbjörnsdóttir, Eva Björk Káradóttir og Marinó Sveinsson. Efni í þáttinn unnu Margrét Blöndal, Gígja Hólmgeirsdóttir og Ágúst Ólafsson. Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir