Síðasta lag fyrir myrkur - Barnalestin (e. Viola Ardone)

Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar - A podcast by Bókasafn Hafnarfjarðar

Síðasta lag fyrir myrkur er... Barnalestin.  Hjalti Snær Ægisson bókmenntafræðingur leiðir okkur inn í kvöldið með bókum, sögum, sagnfræði og tónlist í bókmenntahlaðvarpi Bókasafns Hafnarfjarðar, einn eða með góðum gestum. Sestu í uppáhaldsstólinn þinn, helltu upp á kaffi og komdu með. Hin napoleanska Viola Ardone er höfundur mánaðarins, og munum við fara yfir bókina Barnalestin, en hún er er þriðja bók höfundar og sú fyrsta sem vekur verulega athygli utan heimalandsins. Halla Kjartansdóttir þýddi. Barnalestin er ljúfsár og heillandi ítölsk skáldsaga byggð á sönnum atburðum og fjallar um harða lífsbaráttu, fjölskyldubönd og neyðina sem markar fólki bás og örlög. Bókin segir frá Amerigo, sem er sjö ára og býr í sárri fátækt með móður sinni í Napólí. Heimsstyrjöldinni er nýlokið og innviðir landsins eru í rúst. Kommúnistar vilja bjarga börnum borgarinnar frá verstu hörmungunum og koma þeim til vetrardvalar norður í landi, þar sem ástandið er skárra. Þúsundum saman eru börn úr suðrinu send með lest eftir Ítalíu endilangri og veröldin sem mætir þeim í norðri er framandi. Nægur matur, hlý föt, öryggi – og ný fjölskylda, nýir siðir og ný tækifæri. Sum snúa aldrei aftur til fyrra lífs.