FlokkaFlakk - Flokkur 420

Hlaðvarp Bókasafns Hafnarfjarðar - A podcast by Bókasafn Hafnarfjarðar

Bókasafn Hafnarfjarðar keyrir fram þekkingu og skemmtun á öldum ljósvakans! Halldór Marteinsson upplýsingafræðingur tekur titill sinn alvarlega og upplýsir hlustendur um snilld og sniðugheit hins alræmda Deweykerfis.  420. Tala sem á sinn eigin dag. Tala sem er alræmd og fyndin í senn, - tala bara fyrir fullorðna. Tala í dægurkúltúr og bröndurum. Tala enska tungumálsins í Deweykerfinu.